Listeners:
Top listeners:
ENGLISH Channel 01 If English is your language, or a language you understand, THIS IS YOUR CHANNEL !
ITALIAN Channel 02 Se l’italiano è la tua lingua, o una lingua che conosci, QUESTO È IL TUO CANALE!
EXTRA Channel 03 FRED Film Radio channel used to broadcast press conferences, seminars, workshops, master classes, etc.
GERMAN Channel 04 Wenn Ihre Sprache Deutsch ist, oder Sie diese Sprache verstehen, dann ist das IHR KANAL !
POLISH Channel 05
SPANISH Channel 06 Si tu idioma es el español, o es un idioma que conoces, ¡ESTE ES TU CANAL!
FRENCH Channel 07 Si votre langue maternelle est le français, ou si vous le comprenez, VOICI VOTRE CHAINE !
PORTUGUESE Channel 08
ROMANIAN Channel 09 Dacă vorbiţi sau înţelegeţi limba română, ACESTA ESTE CANALUL DUMNEAVOASTRĂ!
SLOVENIAN Channel 10
ENTERTAINMENT Channel 11 FRED Film Radio Channel used to broadcast music and live shows from Film Festivals.
BULGARIAN Channel 16 Ако българският е вашият роден език, или го разбирате, ТОВА Е ВАШИЯТ КАНАЛ !
CROATIAN Channel 17 Ako je hrvatski tvoj jezik, ili ga jednostavno razumiješ, OVO JE TVOJ KANAL!
LATVIAN Channel 18
DANISH Channel 19
HUNGARIAN Channel 20
DUTCH Channel 21
GREEK Channel 22
CZECH Channel 23
LITHUANIAN Channel 24
SLOVAK Channel 25
ICELANDIC Channel 26 Ef þú talar, eða skilur íslensku, er ÞETTA RÁSIN ÞÍN !
INDUSTRY Channel 27 FRED Film Radio channel completely dedicated to industry professionals.
EDUCATION Channel 28 FRED Film Radio channel completely dedicated to film literacy.
SARDU Channel 29 Si su sardu est sa limba tua, custu est su canale chi ti deghet!
“Conversation with” at the 20th Marrakech IFF, interview with actor Willem Dafoe Bénédicte Prot
Við lok nítjándu aldar var skeið hinna fyrstu heimssýninga. Kvikmyndir, sem komu fram á sjónarsviðið á sama tíma, hafa æ síðan verið tengdar við hugmyndina um að njóta þeirra sem ,listviðburða’, og þar sem um sviðslist er að ræða er þá frekar vitnað til þessara viðburða sem ,hátíða’.
Árið 1910 var fyrsti opinberi viðburðurinn haldinn í Mílanó, en þangað komu framleiðendur frá Ítalíu, Frakklandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Það var þó með tilkomu kvikmynda í fullri lengd og talmynda, sem kvikmyndir voru loks viðurkenndar sem sjálfstæð listgrein, sem bæri að sýna við sérstök tækifæri á árlegum hátíðum.
Fyrsta kvikmyndahátíðin var sett á stofn á Ítalíu 1932; Kvikmyndahátíðin í Feneyjum. Hún var mótsstaður ýmissa aðila: Kvikmyndaáhugafólks, heimamanna sem tengdust ferðamennsku og tilvalinn vettvangur til að þróa markað með innlendar og alþjóðlegar kvikmyndir. Þar gat listafólk frá ýmsum löndum og frá ólíkum menningarsvæðum borið saman bækur sínar og almenningur fékk líka tækifæri til að hitta listamenn og eiga samræður við þá.
Í kjölfarið var Kvikmyndahátíðin í Cannes stofnuð í Frakklandi 1946, og samstundis upphófst mikil og skapandi samkeppni við ítölsku hátíðina. Innan fárra ára urðu fleiri alþjóðlegar hátíðir til (eins og Locarno í Sviss 1946 og Berlín í Þýskalandi 1951) og komist var að samkomulagi um eins konar dagskrá; hvenær ætti að sýna myndir á alþjóðavísu.
Frá upphafi voru verðlaun eitt aðalaðdráttarafl slíkra hátíða, bæði vegna viðurkenningarinnar sem hátíðirnar nutu, en ekki síður vegna fjárhagslegs ávinnings. Mikilvægi verðlaunanna var undir fagmennsku dómnefndanna komið, en oftast sátu í þeim karlar og konur úr kvikmyndaiðnaðinum, þekkt og áberandi fólk úr heimi menningar og lista. Algengustu verðlaunin á þessum hátíðum voru veitt fyrir bestu kvikmynd, bestu leikstjórn og besta leik. Í gegnum árin hafa margar hátíðir reynt að kynna sig sem tískuviðburði, sem geti náð til fjöldans og vakið athygli fjölmiðla.
Ekki má gleyma því að einnig hafa verið stofnaðar sérhæfðari kvikmyndahátíðir og margar þeirra notið vinsælda. Má þar nefna Oberhausen, stofnuð 1955 og tileinkuð stuttmyndum, Alþjóðlega hreyfimyndahátíðin í Annecy, stofnuð 1960, Alþjóðleg kvikmyndahátíð nýju kvikmyndarinnar í Pesaro, stofnuð 1965 og tileinkuð upprennandi kvikmyndagerðarmönnum. Aðrar virtar og sögufrægar hátíðir eru til dæmis Karlovy Vary, sem var stofnuð í fyrrverandi Tékkóslóvakíu á fimmta áratugnum, Kvikmyndahátíðin í San Sebastian, sett á stofn 1953 og Pan African Film and Television Festival (FESPACO), sem er haldin í Burkina Faso. Í Norður-Ameríku hefur hin virta Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Toronto verið haldin síðan 1976, en hún er núna ákaflega mikilvægur vettvangur fyrir kvikmyndir, þar á meðal Hollywood-myndir og þar er veigamikill markaður fyrir sölu kvikmynda alls staðar að úr heiminum. Í Norður-Ameríku er Sundance kvikmyndahátíðin líka haldin, en hún er helguð sjálfstæðum (óháðum) kvikmyndum.
Til viðbótar eru fjölmargar smærri og meðalstórar hátíðir haldnar, sem eiga mikinn þátt í að drífa áfram þróun hljóðræns og sjónræns efnis, og eru mikilvægar fyrir fjárhagslega afkomu viðkomandi staða þar sem þær fara fram. Þess vegna hafa bæði stórar og smáar hátíðir notið góðs af ríkulegum fjárstuðningi opinberra aðila. Á síðustu árum hefur orðið kúvending í þessum opinbera fjárstuðningi og það hefur neytt forsvarsmenn hátíðanna til að endurskoða hlutverk þeirra og leita nýrra leiða. Mikil vinna hefur verið lögð í að útbúa sérstakar dagskrár fyrir ólíka áhorfendahópa, til að reyna að fylgja tíðarandanum eftir. Í þessum dagskrám er um að ræða skiptingu, allt frá meginstraumsmyndum til mynda fyrir forfallna kvikmyndaaðdáendur. Einnig hafa verið settar upp svokallaðar tilraunastofur, vinnustofur (work-shops) innan hátíðanna, sem eru starfandi allt árið, með þann tilgang að styðja beinlínis við undirbúning, þróun og framleiðslu kvikmynda með ákveðna eiginleika (fyrsta verk, alþjóðlegt samstarf, samruni miðla og svo framvegis).
Framleiðandi: Aiace Torino http://www.aiacetorino.it/
Leserar: Þórunn Hjartardóttir, Hafþór Ragnarsson
Tònilist: Bensound – Brazilsamba (Composed and performed by Bensound http://www.bensound.com)
Written by: fredfilmradio
Guest
Film
Festival
No related posts.
(English version) Film: Io Sono Li (2011)
In questi programmi gli studenti parlano di ciò che li ha colpiti maggiormente nei film che hanno visto nell’ambito del progetto, raccontando la loro esperienza.
© 2023 Emerald Clear Ltd - all rights reserved.